Lovísa Níelsdóttir

ID: 9407
Fæðingarár : 1822
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1901

Henrietta L. Nielsdóttir Mynd VÍÆ III

Henrietta Lovísa Níelsdóttir fæddist 1822 á Húsavík í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 26. júlí, 1901 í Selkirk í Manitoba.

Maki: Þorlákur Gunnar Jónsson f. 16. ágúst, 1824 við Berufjörð í S. Múlasýslu, d. í Wisconsin 21. janúar, 1916. Thorlakson vestra.

Börn: 1. Haraldur f. 1847 2. Páll f. 1851, d. 1. mars, 1882 3. Jón f. 1853 4. Jakobína f. 1854 5. Rannveig f. 1856 6. Níels f. 1858 7. Björn f. 1860 8. Valgerður f. 1863.

Fluttu vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873 með fimm yngstu börn sín. Haraldur og Páll fóru vestur árið á undan. Þau bjuggu í borginni í tvö ár en haustil 1875 fluttu þau í Ljósavatnssýslu í Shawano í Wisconsin. Bjuggu þar til ársins 1879 en það ár fluttu þau vestur til N. Dakota og námu land á Mountain. Skömmu fyrir aldamótin fluttu þau til Detroit þar sem þau voru til ársins 1901 en þá fluttu þau til Selkirk í Manitoba.