Ingibjörg Sigurðardóttir

ID: 20007
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1914

Ingibjörg Sigurðardóttir Mynd VÍÆ IV

Ingibjörg Sigurðardóttir fæddist í Blaine í Washington 11. apríl, 1914.

Maki: Lloyd H. Friend f. 29. september, 1913, hann var bróðir William Sherman, fyrri manns Jóhönnu, systur Ingibjargar.

Börn: 1. Constance Svanhvít f. 1935 2. Signý Maja f. 1952.

Ingibjörg var dóttir Sigurðar Hafliðasonar og Þórunnar Ólafsdóttur sem vestur fluttu á fyrsta áratug 20. aldar. Þau settust fyrst að í Manitoba, bjuggu svo í Saskatchewan en fluttu vestur til Washington árið 1913.