Ágúst Jónsson

ID: 20020
Fæðingarár : 1873
Dánarár : 1919

Ágúst Jónsson Mynd Almanak 1922

Ágúst Júlíus Jónsson fæddist 20. júní, 1873 á Álftanesi í Gullbringusýslu. Dáinn í Reykjavík í Manitoba 20. febrúar, 1919. Johnson vestra.

Maki: 1899 Sigríður Erlendsdóttir f. í Skálholti í Árnessýslu árið 1871, d. í Reykjavík í Manitoba 25. maí, 1941.

Börn: Upplýsingar vantar um börn þeirra.

Ágúst og Sigríður fóru til Vesturheims árið 1900 og voru fyrsta árið í Winnipeg. Námu land við norðanvert Manitobavatn nærri Reykjavík. Þar var Ágúst með griparækt.