ID: 6803
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1916
Sveinn Sölvason fæddist 3. september, 1833 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn á Gimli 23. janúar, 1916.
Maki: Monika Jónsdóttir f. 9.október, 1832, d. 19. desember, 1917.
Börn: 1. Stefán 2. Sveinn f. 1870 3. Lilja f. 1872 4. Þorbjörg f. 8. júlí, 1875 5. Sölvi f. 1877. Með þeim vestur fór , fóstursonur,Viggó E. Friðriksson 3ja ára snáði.
Fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og settust að í Nýja Íslandi. Þaðan lá leið þeirra suður í Thingvallabyggð í N. Dakota árið 1889 þar sem þau bjuggu til ársins 1903. Þá nam Sveinn land Manitoba, skammt frá Selkirk.
