Rósa K Tryggvadóttir

ID: 20052
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1898
Fæðingarstaður : N. Dakota

Rósa Kristbjörg Tryggvadóttir Mynd VÍÆ IV

Sigurður Bjarni Sigurðsson Mynd VÍÆ IV

Rósa Kristbjörg Tryggvadóttir fæddist í Pembina í N. Dakota 2. október, 1898.

Maki: 28. júní, 1925 í Vatnabyggð Sigurður Bjarni Sigurðsson f. 6. júlí, 1900 í N. Dakota. Sigurður Bj. Sturlaugsson vestra.

Börn: 1. Vermita Sigurrós f. 23. júní, 1934.

Rósa var dóttir Tryggva Jónssonar og  seinni konu hans, Rósu I Jónsdóttur, landnema í Pembina í N. Dakota. Foreldrar Sigurðar voru Sigurður Jónasson (Sturlaugsson vestra) og Helga Bjarnadóttir. Rósa ólst upp í Pembina, lauk þar miðskólanámi árið 1918 og kennaraprófi árið 1921. Kenndi eftir það í nokkur ár fyrir hjónaband. Sigurður var hárskeri.