
Halldór Vilbert Tryggvason Mynd VÍÆ IV
Halldór Vilbert Tryggvason fæddist í Pembina í N. Dakota 23. apríl, 1901. Johnson vestra.
Maki: 24. júní, 1932 Albertína Guðrún Jónsdóttir f. í Winnipeg 23. apríl, 1909. Olafsson fyrir hjónaband.
Börn: John Theodore f. í Leslie í Saskatchewan 6. febrúar, 1938, d. í Blaine í Washington 7. janúar, 1947.
Halldór ólst upp hjá foreldrum sínum, Tryggva Jónssyni og Rósu I Jónsdóttur landnema í Pembina. Ungur að árum fór hann vestur til Saskatchewan þar sem hann vann landbúnaðarstörf. Flutti þaðan til Minnesota og vann fyrst hjá bændasamtökum en seinna hjá Ford Motor Co, í St. Paul. Flutti seinna til Blaine í Washington þar sem hann setti upp skósmíðaverkstæði. Albertína var dóttir Jóns Ólafssonar, kaupmanns í Leslie í Vatnabyggð og konu hans Sigríðar Jónsdóttur.
