Margrét Guðmundsdóttir

ID: 6893
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1855
Dánarár : 1919

Margrét Guðmundsdóttir fæddist árið 1855 í Húnavatnssýslu. Dáin í Leslie í Saskatchewan 8. mars, 1919. Margaret Goodman vestra.

Ekkja.

Börn: 1. Jóhanna f. 1881 2. Árnonía Margrét f. 1885 3. Guðrún f. 1889 4. Jón f. 21. maí, 1893.

Margrét flutti vestur til Kanada árið 1903, með son sinn 9 ára. Dæturnar fóru áður vestur. Margrét var fyrst rúmlega ár í Winnipeg en árið 1904 flutti hún vestur í Vatnabyggð og nam land nærri Leslie. Þar ólst Jón upp, og varð seinna bóndi þar í sveit.