Jón Guðmundsson

ID: 6894
Fæðingarár : 1893

Jón Guðmundsson fæddist í Húnavatnssýslu 21. maí, 1893.

Maki: 1) Lilja Pétursdóttir f. 30. nóvember, 1902 í S. Þingeyjarsýslu, d. 27. júní, 1939 2) 27. nóvember, 1941 Sesselja Sigurfinnsdóttir f. 8. apríl, 1904 í S. Múlasýslu.

Börn: Með Lilju 1. Dora f. 14. ágúst, 1919, d. 13. desember, 1932 2. Sigmundur Leonard f. 25. júlí, 1920 3. Ruby Sigríður Margrét f. 24. mars, 1924 4. John Franklin f. 19. júní, 1926. Með Sesselju 1. Árni Sigfinnur f. 31. október, 1942 2. Dennis Helgi f. 31. október, 1942, tvíburar.

Jón for til Vesturheims árið 1903 með móður sinni, ekkjunni Margréti Guðmundsdóttur.  Systur hans þrjár höfðu farið áður. Eftir rúmlega ársdvöl í Winnipeg ákvað Margrét að flytja vestur í Vatnabyggð og nam hún land nærri Leslie. Þar ólst Jón upp og fékk ungur mikinn áhuga á samfélagsmálum og sat í skólaráði ein 33 ár. Hann var bóndi þar í sveitinni.