Sigríður Sigurðardóttir

ID: 6930
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1943

Sigríður Sigurðardóttir fæddist árið 1853 í Skagafjarðarsýslu. Dáin árið 1943.

Maki: 1883 Jóhannes Árnason fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1853. Dáinn í Manitoba árið 1918.

Barnlaus.

Jóhannes fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og áfram til Nýja Íslands. Hann flutti þaðan suður í Akrabyggð í N. Dakota. Bróðir hans, Ólafur sem kvæntur var Ragnheiði Ósk, systur Sigríðar konu Jóhannesar flutti vestur þangað í byggðina árið 1887 og höfðu þeir bræður samyrkjubú eftir það. Þeir fluttu saman í Brownbyggð í Manitoba árið 1899.