
Aftast: Sigurður, Árni, Halldór, Valdimar,Gísli. Miðja: Ragnheiður , Sigríður, Salóme, Ólafur. Fremst: Ingvar, Vilhjálmur. Mynd tekin 1910, SÍND
Ólafur Árnason fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1858. Dáinn í Brownbyggð í Manitoba árið 1917.
Maki: Ragnheiður Ósk Sigurðardóttir f. 1856 í Skagafjarðarsýslu, d. 1923.
Börn: 1. Árni f. 20. september, 1879 2. Ragnar Sigurður f. 6. febrúar, 1883 3. Salóme f. 10. janúar, 1885 4. Gísli f. 13. október, 1886 5. Halldór Benedikt f. 27. júlí, 1891 6. Valdimar Jóhannes 7. Sigríður 8. Ingvar Marínó 9. Vilhjálmur Eggert.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og fóru strax suður í Akrabyggð í N. Dakota þar sem Jóhannes, bróðir Ólafs hafði numið land. Bræðurnir unnu það síðan saman næstu árin en fluttu svo þaðan í Brownbyggð árið 1899 og bjuggu þar alla tíð.
