Kristjana Sveinsdóttir

ID: 20108
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1888

Kristjana Rakel Sveinsdóttir Mynd VÍÆ IV

Kristjana Rakel Sveinsdóttir fæddist 18. maí, 1888 í Nýja Íslandi. Dáin árið 1971 í Vancouver. Rakel Bjornson vestra.

Maki: Björn Björnsson f. 30. september, 1885 í Húnavatnssýslu, d. 1969 í Vancouver.

Börn: 1. Harold f.1910 2. Carl f. 1914 3. Anna f. 1915 4. Verne f. 1917 5. Sophie f. 1919 6. Barney f. 1920.

Kristjana var dóttir Sveins Kristjánssonar og Veroníku Þorkelsdóttur landnema í Nýja Íslandi árið 1883. Björn flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 með móður sinni, Önnu Sæmundsdóttur. Þau settust að í Selkirk þar sem Björn ólst upp. Hann vann við trésmíðar áður en hann flutti í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905. Þar nam hann land, hóf búskap en byggði jafnframt ótal íbúðarhús, hlöður og fjós í ungri byggð vestur af Wynyard. Árið 1926 hætti hann búskap og sneri sér að bílasölu. Flutti til Wynyard þar sem hann bjó til ársins 1937, þá flutti hann til Vancouver og fékkst þar við húsbyggingar.