ID: 20116
Fæðingarár : 1872
Dánarár : 1945

Jóhannes Lárusson Mynd VÍÆ IV
Jóhannes Lárusson fæddist 11. september, 1872 í Snæfllsnessýslu. Dáinn í Vancouver 29. júlí, 1945.
Maki: 15. desember, 1916 Jóhanna Jónsdóttir f. í V. Skaftafellssýslu 22. júlí, 1869, d. í Vancouver 22. febrúar, 1967.
Barnlaus.
Jóhanna flutti til Vesturheims í október árið 1910 og fór fyrst til Winnipeg. Þaðan lá leið hennar vestur að Kyrrahafi þar sem hún settist að í Vancouver. Þangað kom Jóhannes árið 1912, beint frá Íslandi. Þau settust að í Prince Rupert þar sem Jóhannes vann við trésmíðar en Jóhanna vann við sauma og hattagerð. Þá list hafði hún numið í Kaupmannahöfn. Seinna fluttu þau til Vancouver.
