Kristrún Hallgrímsdóttir fæddist árið 1861 í Skagafjarðarsýslu.
Maki: 19. júní, 1880 Jón Jónsson fæddist 8. nóvember, 1854 í Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu. Hörgdal vestra.
Börn: 1. Alfred 2. John Wilhelm 3. Hólmfríður María 4. Emilía 5. Hallgrímur 6. Jón 7. Árni 8. Valdemar 9. Elínborg 10. Guðbjörg Sigrún f. 30. nóvember, 1900 í Hallson, N.Dakota.
Jón fór vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settist að í Nýja Íslandi. Samskipa var Kristrún með foreldrum sínum. Jón vann í Winnipeg árið 1878 og þar hitti hann af tilviljun Jóhann Pétur Hallsson sem var þá á leiðinni úr Nýja Íslandi suður í N. Dakota. Jón slóst í för og var þá móðir hans, Karitas Árnadóttir komin vestur. Saman námu þau land í byggð þeirri sem seinna varð Hallsonbyggð árið 1879. Jón endaði árið 1918 í Vatnabyggð í Saskatchewan og bjó í Elfros.
