Pétur Þorkelsson

ID: 7015
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1951

Pétur Þorkelsson fæddist 12. júní, 1872 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Lyon sýslu í Minnesota 3. febrúar, 1951.

Maki: 14. desember, 1896 Vilborg Friðriksdóttir f. 25. janúar, 1868 í S. Múlasýslu.

Börn: 1. Anna Soffía (Sophie) f. 25. janúar, 1900, d. 2. júlí, 1990 2. Friðrik (Frederik) Byron Pétur f. 18. desember, 1907 3. Vilborg Marjorie f. 1910 4. Floyd Julian f. 12. júli, 1914.

Pétur flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Þorkeli Guðmundssyni og Önnu Sigríði Skúladóttur og systkinum. Þau settust að í Lyon sýslu. Vilborg fór vestur með sínum foreldrum, Friðriki Guðmundssyni og Guðnýju Þorláksdóttur árið 1883. Þau settust að í Yellow Medicine sýslu í Minnesota.