Sigurbjörg Sigfúsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1859.
Maki: 24. desember, 1895 Sveinn Árnason f. í N. Múlasýslu árið 1869.
Börn: 1. Árný Soffía f. í Akrabyggð 2. febrúar, 1896 2. Ingigerður Andrea Kristín f. í Hallson, ND f. 13. desember, 1896 3. Sigurbjörg Anna f. í Brownbyggð 29. júlí, 1902 4. Edna Rannveig Stefanía f. í Brownbyggð 12. nóvember, 1905
Sigurbjörg fór vestur árið 1876 með foreldrum sínum, Sigfúsi Gíslasyni og Rannveigu Árnadóttur. Þau settust að í Akrabyggð í N. Dakota. Sveinn fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889. Hann fór til Akra í N. Dakota og fékk vinnu við kennslu. Fluttu í Brownbyggð í Manitoba árið 1889 en flutti til baka til N. Dakota árið 1906. Þau fluttu seinna vestur að Kyrrahafi og bjuggu í Bremerton í Washington og seinna í Seattle.
