
Aftari röð: Richard Mercer, eiginmaður Salbjargar, Jón, Sigurður og Margrét. Fremri röð: Salbjörg og sonur hennar Haraldur (Harold), Sigurður, Jóhanna, Þórey og Richard, sonur Salbjargar. Mynd RbQ
Jóhanna Stefánsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1874. Dáin í Vatnabyggð árið 1981
Maki: Sigurður Sölvason f. í Skagafjarðarsýslu árið 1865 d. 27. desember, 1966 í Saskatchewan.
Börn: 1. Salbjörg f. 7. júní, 1895 2. Þórey Jónína f. 24. nóvember, 1897, d. 25. ágúst, 1965 3. Jón Ó. f. 28. desember, 1902 4. Margrét Lilja f. 8. nóvember, 1904 5. Jóhann Sigurður f. 23. maí, 1907.
Þau fluttu vestur árið 1899 til Winnipeg í Manitoba og fóru fyrst til Mountain í N. Dakota. Þaðan fluttu þau í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905. Þau námu land í Wynyardbyggð.
