ID: 7184
Fæðingarár : 1830
Fæðingarstaður : Árnessýsla
Dánarár : 1894
Þorsteinn Þorsteinsson fæddist 11. júní, 1830 í Árnessýslu. Dáinn í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi 3. nóvember, 1894.
Maki: Steinunn Björnsdóttir f. 3. júní 1811 í Árnessýslu,
Börn: Steinunn átti tvær dætur með fyrri eiginmanni. : 1. Kristín Stefánsdóttir f. 1841 2. Guðrún Stefánsdóttir f. 1846. Hún fór vestur með eiginmanni sínum, Lárusi Björnssyni árið 1876.
Þorsteinn, Steinunn og Kristín fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og settust að í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi.
