ID: 7228
Fæðingarár : 1824
Dánarár : 1907
Sigríður Símonardóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1824. Dáin 1907 í Geysirbyggð.
Maki: Guðmundur Gíslason f. í Skagafjarðarsýslu árið 1824 d. 1902 í Geysirbyggð.
Börn: 1. Guðmundur f. 1868 2. Jón f. 1863
Guðmundur og Sigríður fóru vestur með soninn Guðmund árið 1875. Voru fyrst í Nýja Íslandi en fluttu þaðan suður til Hensel í N. Dakota. Jón fór vestur 1883 og hjá þeim í Hensel þar til 1902 en þá fluttu þau í Geysirbyggð á land sitt og kölluðu Hvamm.
