Elísabet Jónsdóttir

ID: 7239
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1830
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1888

Elísabet Jónsdóttir og dóttir hennar Elísabet Gísladóttir Mynd FAtV

Elísabet Þuríður Jónsdóttir fæddist 23. október, 1830 í Húnavatnssýslu. Dáin í Winnipeg 5. apríl, 1888.

Ekkja eftir Árna Jónsson.

Börn: 1. Anna f. 1860 2. Jón f. 1862 3. Jóhann f. 1864 4. Árni f. 1866. Með Gísla Konráð Eiríkssyni 1. Elísabet Þuríður f. 1870.

Elísabet flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með börn sín árið 1876. Hún settist að í Nýja Íslandi og nam land í Árnesbyggð sem hún nefndi Mel. Flutti þaðan norður í Fljótsbyggð en árið 1879 fór hún til Winnipeg og bjó þar hjá dóttur sinni, Elísabetu.