Elísabet Gísladóttir

ID: 7244
Fæðingarár : 1869
Dánarár : 1959

Elísabet Þuríður Gísladóttir Mynd VÍÆ I

Elísabet Þuríður Gísladóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 3. apríl, 1869. Dáin í Winnipeg 2. maí, 1959. Polson vestra.

Maki: 3. júní, 1888 Ágúst Gunnarsson f. í N. Þingeyjarsýslu 29. júní, 1865, d. 14. október, 1944 í Winnipeg. Ágúst G Polson vestra.

Börn: 1. Jóhanna f. 7. október, 1888, d. 5. mars, 1959 2. Elísabet f. 22. ágúst, 1873 4. Archibald Jón f. 25. nóvember, 1895, d. í Englandi 1. september, 1917 5. Margrét f. 9. júlí, 1900 6. Sigríður Ágústa Björg f. 13. desember, 1902 7. Robert Wyatt f. 13. október, 1903 8. Lena f. 8. nóvember, 1906 9. Fjóla Alexandra f. 13. maí, 1908 10. Jóhann Konráð f. 11. janúar, 1910 11. Florence Archibel f. 22. október, 1924, fósturdóttir.

Elísabet var dóttir Gísla Konráðs Eiríkssonar og Elísabetar Þuríðar Jónsdóttur. Hún flutti vestur árið 1876, með móður sinni, ekkjunni Elísabetu (d. í Winnipeg 5. apríl, 1889) og fjórum börnum hennar. Elísabet var með móður sinni í Nýja Íslandi og í Winnipeg frá 1879. Þar var Elísabet til aldamóta, fór það ár til Gimli og bjó þar í 19 ár. Flutti þá aftur til Winnipeg. Hún tók alla tíð mikinn þátt í félagsmálum landa sinna.