Sigurbjörg Hannesdóttir

ID: 7489
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1911

Sigurbjörg Hannesdóttir fæddist árið 1854 í Skagafjarðarsýslu. Dáin í Manitoba 27. febrúar, 1911.

Maki: Jónas Guðmundsson f. 24. febrúar, 1860, d. í Winnipeg 5. ágúst, 1943. Jonas Middal Wilson vestra.

Sigurbjörg flutti vestur til Manitoba árið 1876 og mun hafa sest að í Winnipeg. Jónas flutti vestur til Ontario árið 1874 með móður sinni, Helgu Jónasdóttur og systkinum. Hann var í Kinmount fyrsta árið en flutti svo þaðan til Nýja Íslands. Hann og Jósef, bróðir hans, námu lönd í N. Dakota en bjuggu þar ekki heldur settust þeir að í Winnipeg.