
Stefán Ólafsson og Kristín Þarvaldsdóttir Mynd IRS
Stefán Ólafsson fæddist í Winnipeg 2. ágúst, 1896. Dáinn á sjúkrahúsi í Winnipeg 19. febrúar, 1956.
Maki: 26. desember, 1918 Kristín Soffía Þorvaldsdóttir f. í Fljótsbyggð 14. júlí, 1901. Dáin í Nýja Íslandi 15. ágúst, 1983.
Börn: 1. Helga Jóhanna f. 12, janúar, 1920 2. Stefán Ólafur (Steve) f. 20. júlí, 1921 3. Haraldur Gordon f. 6. júní, 1923 4. Kristín Fjóla f. 17. janúar, 1925, d. af slysförum 11. ágúst, 1928 5. Joyce Doreen f. 3. desember, 1926 6. Esther Loreen f. 12. apríl, 1928 7. Viola Joan Barbara f. 26. janúar, 1934 8. Constance Rosalia f. 24. nóvember, 1936.
Kristín var dóttir Þorvaldar Þórarinssonar og Helgu Tómasdóttur í Fljótsbyggð. Foreldrar Stefáns voru Stefán Ólafsson og Jóhanna María Friðriksdóttir. Kristín og Stefán fluttu til Winnipeg stuttu eftir brúðkaupið þar sem þau voru í eitt ár. Sneru þá aftur til Riverton og komu sér þar vel fyrir. Stefán rak bílaverkstæði til ársins 1945, keypti þá land skammt frá þorpinu og hófu búskap. Þar bjuggu þau síðan. Meir um Stefán í Íslensk arfleifð að neðan.