Magnús Egilsson

ID: 1883
Fæðingarár : 1894
Dánarár : 1962

Magnús Egilsson og Sigríður Pálmadóttir Mynd IRS

Magnús Egilsson fæddist 14. júlí, 1894 í Gullbringusýslu. Dáinn í Bresku Kólumbíu árið 1962. Magnus E Johnson vestra..

Maki: 12. október, 1916 í Winnipeg  Sigríður Pálmadóttir f. í Húnavatnssýslu 24. desember, 1891, d. í Winnipeg 5. september, 1957. Johnson vestra.

Börn: 1. Magnea Ragnhildur f. 2. desember, 1917 í Winnipeg 2. Lára Pálína Guðrún f. f. í Árnesi í Nýja Íslandi 29. október, 1919 3. Pálmi Egill f. í Árnesi 8. júlí, 1921 4. Ósk Eleanor f. í Riverton 30. nóvember, 1924 5. Hjálmar Wilfred f. í Riverton 18. október, 1931.

Sigríður  var dóttir Pálma Lárussonar og Guðrúnar Steinsdóttur er vestur fluttu árið 1893 og bjuggu lengst á Gimli. Foreldrar Magnúsar voru Egill Jónsson og Ragnhildur Magnúsdóttir frá Flekkuvík í Gullbringusýslu. Sigríður og Magnús bjuggu fyrst í Winnipeg þar sem Magnús vann hjá Bardal útfararþjónustunni. Þau fluttu þaðan í Árnes í Nýja Íslandi til að aðstoða foreldra Magnúsar við búskapinn. Fluttu þaðan til Riverton og bjuggu þar til ársins 1942 er þau sneru aftur til Winnipeg.