ID: 7863
Fæðingarár : 1835
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1904
Kristín Gunnlaugsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1835. Dáin árið 1904 í Selkirk.
Maki: Jóhann Hannibal Schaldemose f. í Skagafjarðarsýslu árið 1841, d. 19. apríl, 1914 í Winnipegosis.
Börn: 1. Guðrún f. 1868 2. Gunnlaugur f. 1872 3. Jónas f. 1872 4. Geirlaug Una f. 1881.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883. Með þeim fór faðir Jóhanns, Jóhann Hannibal f. 1814. Þau settust að í Nýja Íslandi og bjuggu þar í sex ár, fluttu þá þaðan í Selkirk. Þar missti Jóhann sjónina og varð blindur eftir það á báðum augum. Hann fór þá til sona sinna Jónasar og Gunnlaugs sem búsettir voru í Winnipegosis.
