Einar Haralz

ID: 20393
Fæðingarár : 1890
Dánarár : 1951

Einar Haraldsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 28. júlí, 1890. Dáinn í Vancouver 22. apríl, 1951.

Maki: 29. október, 1928 Sigríður Haraldsdóttir f. í Eyjafjarðarsæyslu 24. ágúst, 1892, Haralz vestra.

Börn: 1. Haraldur Ingvar f. 22. ágúst, 1929 2. Daníel Jón f. 26. febrúar, 1934.

Einar flutti til Winnipeg um 1920 og vann við húsamálningar. Sigríður flutti vestur til Kanada árið 1922 og fór til föðurbróður síns, Jóns Thorlacius í Leslie í Vatnabyggð. Þaðan lá svo leið hennar til Winnipeg þar sem hún vann fatasaum. Þau fluttu vestur til Vancouver árið 1944.