Flóvent Jónsson

ID: 8058
Fæðingarár : 1839
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1930

Flóvent Jónsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 12. júlí, 1839. Dáinn í Nýja Íslandi árið 1930.

Maki: 10. apríl, 1872 Bergrós Jónsdóttir f. 10. janúar, 1847 í Eyjafjarðarsýslu, d. 4. janúar, 1928 í Blaine í Washington.

Börn: 1. Jónína Steinunn f. 1872, d. úr bólusótt í Nýja Íslandi 28. nóvember, 1876 2. Tvíburar fæddir andvana 1878 3. Soffía f. 1879, dó ung. Flóvent átti tvö börn fyrir 1. Jón f. 1862 3. Lilja f. 1865.

Flóvent og Bergrós fóru vestur til Ontario í Kanada árið 1873 með dóttur sína Jónínu og Jón son Flóvents. Þau fóru með fyrsta hópnum til Nýja Íslands árið 1875 og lentu þar í ýmsum hremmingum. Jónína dóttir þeirra dó í bólusóttinni og þau urðu að yfirgefa landnámsjörð sína, Skriðuland, vegna flóða í Winnipegvatni og settust að í Selkirk. Sneru til baka á Skriðuland og bjuggu þar í ellefu ár en þá skildu þau. Jón sonur Flóvents var þá látinn líka. Flóvent ákvað að fara heim til Íslands, tók lest til Halifax og þaðan með norsku skipi til Bretlands. Þaðan komst hann svo til Íslands. Ekki undi hann sínum hag á Íslandi, fór úr Eyjafirði vestur í Dýrafjörð og þaðan vestur um haf. Hann vann á bandarískum fiskibátum fáein ár áður en hann fór vestur til Nýja Íslands um 1900. Bergrós hafði flutt til Winnipeg og þaðan til Blaine í Washington.