
Kortið sýnir staði við austanvert Manitobavatn. Íslendingar settust þarna að allmargir og voru tvær ástæður helstar. Landið var gott fyrir kvikfjárrækt og í vatninu var góð fiskveiði. Eggert var einn þeirra sem settist að á Siglunesi, sonur hans Sigurbjörn bjó í Vogum.
Eggert Sigurgeirsson fæddist 8. febrúar, 1871 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Nýja Íslandi 5. febrúar, 1937.
Maki: Svanhildur Sigurbjörnsdóttir f. 24. ágúst, 1872 í Eyjafjarðarsýslu, d. 12. júlí, 1954 í Manitoba.
Börn: 1. Sigurbjörn f. 11. september, 1895, d. 15. ágúst, 1977 2. Jóhann Magnús f. 1899 3. Guðbjörg f. 5. júlí, 1905 4. Sigríður 5. Davíð 1. maí, 1911.
Þau fluttu vestur um haf árið 1906 til Manitoba og nam land þar sem heitir Siglunes Þar stundaði hann griparækt og fiskveiðar.
