Hrólfur Matthíasson fæddist árið 1840 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba árið 1913.
Maki: 1) Sesselja Jónsdóttir f. 1836 í S. Þingeyjarsýslu 2) 1869 Ingunn Jónatansdóttir f. 15. júní, 1851.
Börn: Með Sesselju 1. Laufey f. 1862 2. Inga Guðrún f. 1865 3. Sigurður f. 1866. Með Ingunni 1. Þorsteinn f. 1870 2. Sesselja f. 1874 3. Jóhanna f. 1878 4. Þorgrímur Gunnar f. 4. október, 1879, d. 28. september, 1907 í Manitoba 5. Jónína f. 1884 6. Valgerður f. 1890. Eitt barn þeirra dó í æsku.
Hrólfur og Ingunn fluttu vestur árið 1903 með Valgerði. Af börnum Hrólfs fóru vestur Laufey árið 1900, Inga Guðrún árið 1888, Jónína árið 1904, Þorgrímur eftir 1901 og Jóhanna árið 1912. Óljóst hvaða ár Þorsteinn flutti vestur, Sesselja bjó alla tíð á Íslandi. Þau settust að í Manitoba og bjuggu fyrstu tvö árin í Glenboro, fóru svo norður á Winnipeg Beach og bjuggu þar.
