Jón Sigfússon

ID: 8101
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1926

Jón Sigfússon fæddist 1861 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í mars, 1926. John Sigfusson Bergmann vestra..

Maki: 11. nóvember, 1887 Sigurbjörg Davíðsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 18. ágúst, 1864.

Börn: 1. Ingibjörg Anna f. 20. mars, 1889, d. 20. desember, 1928 2. Gestur f. 1. október, 1891, d. 3. september, 1893 3. Þórunn f. 19. nóvember, 1893 4. Kristín Elísabet f. 26. september, 1898 5. Valgerður Soffía f. 16. apríl, 1896.

Sigurbjörg flutti vestur til Ontario í Kanada með foreldrum sínum, Davíð Davíðssyni og Önnu Jónsdóttur árið 1873. Þau bjuggu í Muskoka til ársins 1886, fluttu þá vestur til Garðar í N. Dakota. Jón flutti vestur til N. Dakota árið 1882 með foreldrum sínum og systkinum og settust þau sömuleiðis að í Garðar. Þar bjuggu líka Jón og Sigurbjörg.  Jón rak verslun og pósthús, fór til Alaska árið 1898 þar sem hann leitaði gulls og bjó þar allmörg ár. Heimsótti Garðar reglulega en dó í San Diego í Kaliforníu. Hann er grafinn í Garðar.