ID: 8113
Fæðingarár : 1876
Dánarár : 1954
Stefán Jónasson fæddist 20. maí, 1876 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í N. Dakota 7. október, 1954. Stefán J Hallgrímsson vestra.
Maki: 1) Hallgríma Rósa Hóseasdóttir f. 29. maí, 1872 í Eyjafjarðarsýslu d. í Garðar 5. desember, 1912.
Börn: 1. John Stefánsson f. í Garðar 15. ágúst, 1904.
Stefán flutti til Vesturheims árið 1883 með foreldrum sínum, Jónasi Hallgrímssyni og Þóreyju Jónsdóttur. Stefán var bóndi í Garðarbyggð í N. Dakota. Rósa flutti vestur með móður sinni, Sigurjónu Hallgrímsdóttur árið 1888.
