Halldór Árnason

ID: 8133
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1934

Halldór Árnason fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1845. Dáinn 19. júlí, 1934.

Maki: 1867 Jóhanna Sigurlaug Jónsdóttir f. Rútsstöðum í Eyjafjarðarsýslu 18. janúar, 1842, d. 22. apríl, 1927.

Börn: 1. Nanna f. 17. janúar, 1869 2. Margrét f. 3. september, 1872

Fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og þaðan áfram til N. Dakota. Árið 1890 flutti hann í Argylebyggð á land sem hann keypti. Seinna seldi hann land og hús og flutti til Glenboro og bjó þar til dauðadags.