Hólmfríður Einarsdóttir

ID: 8153
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1843
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Hólmfríður Einarsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1843.

Maki: Loftur Jónasson f. í Ólafsfirði í Eyjafjarðarsýslu 9. júlí, 1841, d. í Minneota 21. apríl, 1891.

Börn: 1. Jónína f. 23. júlí, 1869.

Hólmfríður fór vestur til Winnipeg í Manitoba með Jónínu 7 ára árið 1876. Heimild vestra segir hana hafa verið eiginkona Lofts. Sé það svo hafa þau annaðhvort skilið eða Hólmfríður dáið stuttu eftir komuna til Kanada því Loftur eignast dóttur með Aðalbjörgu Jóakimsdóttur í apríl, 1877 og bjuggu þau svo saman í Minnesota og áttu þar fleiri börn. Loftur fór vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873. Þar var hann til ársins 1876 en þá nam hann land í Yellow Medicinebyggð. Seldi það árið 1890 og flutti til Minneota.