ID: 8170
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1908
Ásta Þóra Jónasdóttir fæddist árið 1833 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 1908 í Manitoba.
Maki: Kristján Kristjánsson f. í Skagafjarðarsýslu árið 1843. Skagfjörð vestra.
Börn: 1. Jón f. 1866 2. Þóra f. 1868. Bæði börnin dóu í bólunni í Nýja Íslandi árið 1877. Þau tóku tvo drengi í fóstur í N. Dakota. Annar hét Jón en hinn Aðalsteinn. Báðir báru þeir Skagfjörð nafnið.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Fluttu þaðan vorið 1879 og námu land vestur af bænum Cavalier. Fluttu þaðan árið 1902 og settust að í Álftárdalsbyggð.
