ID: 8174
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1954
Sigurjón Jónasson fæddist 15. apríl, 1871 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn 21. október, 1954 Lundarbyggð í Manitoba.
Maki: 27. september, 1909 Jóhanna Einarsdóttir f. í Lyon sýslu í Minnesota 30. ágúst, 1891, d. í Manitoba 3. nóvember, 1951.
Barnlaus.
Sigurjón flutti til Manitoba árið 1891 og fór til móður sinnar, Ólafar Sigurðardóttur og hennar seinni manns, Bjarna Guðmundssonar. :ar var Sigurjón í 11 ár og stundaði fiskveiðar. Árið 1902 settist hann að í Poplar Park þar sem hann bjó í fimm ár. Flutti í Mary Hill sveit skammt frá Lundar árið 1907. Var þar bóndi og fiskimaður til æviloka . Jóhanna var dóttir Einars Guðmundssonar Borgfjörð frá Borgarfirðir eystri og Þórstínu Þorsteinsdóttur sem vestur fluttu til Minnesota árið 1890.
