Friðgeir Halldórsson

ID: 8176
Fæðingarár : 1883
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1956

Friðgeir Halldórsson fæddist 8. júní, 1883 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn á Íslandi 11. febrúar, 1956. Friðgeir H Berg á Íslandi.

Maki: Valgerður Guttormsdóttir f. 1. október, 1887. Fór ekki vestur.

Börn: Guttormur Berg f. 6. mars, 1918 á Íslandi.

Friðgeir flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með föður sínum, Halldóri Bergfinni Jónssyni árið 1900. Hann vann ýmis störf vestra, lenti í slæmu slysi og skaddaðist illa á fæti. Flutti aftur til Íslands árið 1917 og bjó á Akureyri.