Guðrún Árnadóttir

ID: 8192
Fæðingarár : 1846
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1920

Guðrún Árnadóttir Mynd Almanak 1938

Guðrún Árnadóttir fæddist 6. ágúst 1846 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 5. mars, 1920 í Saskatchewan..

Maki: Tómas Jóhannsson f. í Eyjafjarðarsýslu 22. júlí, 1838, d. 15. september, 1921 í Saskatchewan.

Börn: 1. Árni f. 12. ágúst, 1866 2. Katrín f. 5. nóvember, 1868 3. Jóhann f. 25. október, 1869 4. Sigurbjörg f. 28. desember, 1873 5. Páll f. 1. febrúar, 1876 6. Sigurrós f. 27. desember, 1882 7. Jónas f. 6. ágúst, 1884 6. Þórdís f. 19. september, 1887. Fóstursonur Stefán Guðmundur Björnsson.

Fluttu vestur 1888 og fóru til N. Dakota. Keyptu land sunnarlega í Garðar byggð og fluttu á það 1889. Þar bjuggu þau í sjö ár, seldu og byggði Tómas hús nálægt þorpinu Garðar þar sem þau bjuggu til vors 1889. Fluttu þaðan norður í Brown byggðina í Manitoba árið 1899 og tóku land nærri Morden. Þar bjuggu þau til ársins 1906, fluttu þá aftur til N. Dakota og nú til sonar síns, Jóhanns sem bjó í Edinburg. Þaðan lá loks leiðin í Vatnabyggð árið 1913 þar sem sonur þeirra Jónas bjó.