Sigurrós Tómasdóttir

ID: 8196
Fæðingarár : 1882
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Gullbrúðkaup árið 1952 Þórdís, Tómas Jóhann, Guðrún Lára, Þórður, Árni, Ólöf og Margrét. Sigurrós og Þórður sitja. Mynd RbQ

Sigurrós Tómasdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 27. desember, 1882.

Maki: 1902 Þórður Árnason f. 21. mars, 1873 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Árni f. 29. nóvember, 1903 2. Tómas (Thomas) f. 25. nóvember, 1905 3. Guðrún (Gudrun) Lára Svanfríður f. 26. október, 1908 4. Þórdís (Thordis) Stefanía f. 21. september, 1911 5. Sveinn (Svein) Theodore f. 16. mars, 1914, d. 14. desember, 1918 6. Ólöf (Olive) Sigurbjörg f. 2. mars, 1916 7. Margrét (Margaret) Soffía f. 27. mars, 1919 8. Þórður (Thordur) Stefán f. 17. júní, 1923.

Sigurrós fór vestur til N. Dakota árið 1888 með foreldrum sínum, Tómasi Jóhannssyni og Guðrúnu Árnadóttur. Þórður fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889 með bróður sínum Sveini. Fékk Þórður vinnu hjá kanadískum bónda austur af borginni. Var þar í tvö ár og lærði þá ensku ágætlega og ýmsar hliðar landbúnaðar. Var eitthvað við járnbrautarvinnu en fór svo suður til N. Dakota þar sem Sveinn vann við kennslu.

Þegar foreldrar þeirra fluttu vestur 1892 fór Þórður til þeirra. Árni flutti norður í Brown byggð í Manitoba árið 1899 og þangað fór Þórður 1902 og keypti land. Hann seldi það árið 1906 og flutti

í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hann nam land nálægt bænum Mozart.