Ágúst Jónasson

ID: 8202
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1928

Ágúst Jónasson fæddist árið 1854 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn árið 1928.

Maki: 1877 Björg Guðnadóttir f. 1851 í Þingeyjarsýslu, d. 1913 í Saskatchewan.

Börn: 1. Guðni Axel Ágústsson f. 1879  2. Ingibjörg Karólína f. 1880 3. Jón Egill f. 1881

Ágúst og Björg fluttu vestur í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1887 með Ingibjörgu og Jón Egil. Guðni Axel flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900. Ágúst nam land í Garðar en flutti þaðan 1899 í Brown byggðina í Manitoba. Þar var hann til ársins 1906 en þá flutti hann í Vatnabyggð í Saskatchewan og tók land með sonum sínum nærri Mozart.