ID: 8246
Fæðingarár : 1830
Fæðingarstaður : N.Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1889
Sigríður Þorláksdóttir fæddist árið 1830 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin í húsbruna í N. Dakota í desember, 1889.
Maki: Halldór Halldórsson f. árið 1821 í N.Þingeyjarsýslu, d. í húsbruna í desember, 1889.
Börn: 1. Halldór f. 1873 2. Halldóra f. 1877.
Þau fluttu vestur til N. Dakota árið 1882 og settust að í Garðarbyggð. Vesturfaraskrá og manntal á Íslandi 1880 segja hana ráðskonu hjá Halldóri en heimild í N. Dakota, grein eftir Halldór yngra segir þau hjón. Þeir feðgar og nafnar voru að sinna skepnunum þegar þeir sáu reyk leggja frá húsinu, hlupu til því Sigríður lá veik þar inni. Halldór eldri reyndi inngöngu en reykurinn bar hann ofurliði, hann missti meðvitund og dó þar ásamt Sigríði.
