ID: 8300
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1943
Björg Benediktsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 9. september, 1866. Dáin Sonoma sýslu í Kaliforníu 29. september, 1943.
Maki: 19. júní, 1913 í Oregon. McKain að eftirnafni.
Börn: upplýsingar vantar.
Björg flutti vestur til Wisconsin í Bandaríkjunum árið 1873 með foreldrum sínum, Benedikt Vídalín Halldórssyni og Sigríði Þorvaldsdóttur. Þau settust að í Minneota í Minnesota fyrir 1880. Björg flutti vestur að Kyrrahafi þar sem hún gekk í hjónaband. Árið 1920 rak hún matvöruverslun í Astoria í Oregon og bjuggu þá móðir hennar og Halldór bróðir hennar hjá henni.
