Kristinn Stefánsson

ID: 8302
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Kristinn Stefánsson Mynd VÍÆ III

Kristinn Stefánsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 9. júlí, 1856. Dáinn í Winnipeg 26. september, 1916.

Maki: 13. ágúst, 1884 Guðrún Jónsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu 14. júlí, 1857, d. 6. mars, 1936.

Barnlaus.

Kristinn flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1873. Hann settist að í Muskoka og bjó þar til ársins 1881 og flutti til Winnipeg þar sem hann bjó eftir það. Guðrún flutti vestur til Manitoba árið 1876 með foreldrum sínum, Jóni Árnasyni og Rebekku Guðmundsdóttur. Þeir settust að í Nýja Íslandi en Guðrún varð eftir í vist hjá enskumælandi fólki í Winnipeg.