Þórvör Sveinsdóttir fæddist í Garði í Aðalreykjadal í S. Þingeyjarsýslu árið 1849.
Maki: 19. desember, 1875 í Nebraska Jón Halldórsson f. í S. Þingeyjarsýslu 21, febrúar. 1838, d. í Chicago 23. september, 1919.
Börn: 1. Sveinn 2. Soffía 3. Tómas 4. Páll 5. Hrólfur. Öll fædd í Nebraska
Jón fór vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1872. Þar vann hann ýmiss störf eins og allmargir landar hans. Hann var valinn til að fara í landaleit til Nebraska vorið 1874 og keypti land nálægt Firth, smábæ sunnan við Lincoln. Þá var Þórvör komin vestur en óljóst hvort hún hafi tekið þátt í landaleitinni vorið 1874. Móðir hans, og stjúpi komu vestur þangað sumarið 1875 ásamt hálfbræðrum hans og systrum. Hann flutti seinna til Chicago eftir lát Þórvarar ásamt sonum sínum fjórum og dóttur.
