Jónas Jónasson

ID: 8321
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1942

Jónas Jónasson fæddist 28. desember,1849 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn 25. nóvember, 1942 í Fljótsbyggð.

Maki: 10. júlí, 1874 Helga Hallgrímsdóttir f. 31. desember, 1842 í Eyjafjarðarsýslu, d. 30. desember, 1931 í Fljótsbyggð.

Barnlaus en ólu upp nokkur fósturbörn: 1. Friðrika Friðriksdóttir f. 24. mars, 1879 í Winnipeg 2. Ingibjörg Tómasdóttir f. 23. júlí, 1881 3. Sveinn Sigfússon f. 23. ágúst, 1886 4. Stefanía Sveinsdóttir f. ca 1887 5. Haraldur Karl Þórðarson f. ca 1893 6. Bjarni Goodman 7. Guðjón Björnsson.

Þau fluttu vestur árið 1874 og fóru til Kinmount í Ontario með bróður Jónasar, Sigtryggi. Þaðan lá svo leiðin vestur til Nýja Íslands ári síðar og bjuggu fyrsta veturinn á Gimli. Vorið 1876 fluttu þau norður í Mikley. Þaðan lá svo leiðin árið 1877 í Fljótsbyggð þar sem þau bjuggu alla tíð. Jónas var lærður prentari og var ráðinn að útgáfu Framfara og sá um prentun blaðsins alla tíð.