Magnús V Magnússon

ID: 8332
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1965

Magnús Valdimar Magnússon fæddist 27. febrúar, 1873 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Kaliforníu árið 1965.

Maki: 23. desember, 1907 Ásthildur Grímsdóttir f. 4. apríl, 1884 í Ísafjarðarsýslu, d. 13. apríl, 1974 í Los Angeles.

Börn: 1. Eiríkur (Eric) f. 6. október, 1908 2. Ólafur (Oliver) f. 27. janúar, 1915 3. Ragnhildur f. 1917.

Magnús fór vestur til Ontario í Kanada árið 1875 með móður sinni, Málmfríði Baldvinsdóttur. Faðir hans, Magnús Jóhannesson fór vestur þangað árið áður. Þau fluttu austur í Markland í Nova Scotia og voru þar til ársins 1881 en þá fluttu þau til Duluth í Minnesota. Magnús og Ásthildur bjuggu hér og hvar í Minnesota, voru í Louis sýslu árið 1930 en fluttu eftir það til Kaliforníu.