Sigríður Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1825. Thorarensen vestra.
Maki: 1) Sveinn Þórarinsson f. 1820, d. á Íslandi 2) William Taylor f. á Englandi 9. ágúst, 1830, d. 2. mars, 1903 í Argylebyggð.
Börn: Með Sveini 1. Björg f. 1853 2. Jón Stefán f. 1857 3. Ármannía Sigríður f. 1859 4. Friðrik f. 1866.
Sigríður flutti ekkja vestur árið 1876 og fór til Winnipeg í Manitoba og þaðan til Nýja Íslands. Friðrik, sonur hennar, var þangað kominn en hann fór vestur með Ólafi Ólafssyni frá Espihóli árið 1873 og með honum til Nýja Íslands árið 1875. William kynntist Íslendingum í Kanada í gegnum bróður sinn, John Taylor, þess sem aðstoðaði Íslendinga mikið við stofnun Nýja Íslands og á upphafsárunum þar. William fór fyrstur í landaleit í sunnan og vestur af Winnipeg og nam land þar sem seinna varð Argylebyggð. Hann missti konu sína þar árið 1884 og þangað kom Sigríður seinna. Þar bjuggu þau eftirleiðis.
