Ófeigur Gunnlaugsson

ID: 8367
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1931

Ófeigur Gunnlaugsson fæddist í N. Múlasýslu 23. ágúst, 1853. Dáinn í Vatnabyggð 6. apríl, 1931.

Maki: 1) Sulime Jóhanna Stefánsdóttir f. 27. nóvember, 1873, d. í N. Dakota 20. september, 1905 2) Una Sigurðardóttir f. í Hnausabyggð í Nýja Íslandi 27. september, 1877.

Börn: Með Sulime: 1. Guðrún Stefanía f. 9. nóvember, 1889 2. Olgeir f. 4. desember, 1890 3. Sigrún f. 1. mars, 1895 4. Helga f. 1. nóvember, 1900. Með Unu 1. Sarah f. 26. september, 1912 2. Lára f. 23. júní, 1914.

Ófeigur flutti fyrst vestur árið 1880, fór heim til Íslands en aftur vestur frá Akureyri árið 1883. Hann bjó í N. Dakota til ársins 1911, flutti þá norður í Vatnabyggð og settist að í Wynyard. Bjó þar alla tíð.