Friðhólm V Benediktsson

ID: 20462
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1894

Friðhólm Valdimar Bene-diktsson Mynd VÍÆ II

Friðhólm Valdimar Benediktsson fæddist í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi 7. maí, 1894.

Maki 17. maí, 1923 Kristín Sigríður Hallgrímsdóttir fæddist 21. október, 1892 í Nýja Íslandi.

Börn: 1. Allan Friðrik Irwin f. 15. september, 1924 2. Donald Valdimar f. 31. ágúst, 1926 3. Hallgrímur Raymond f. 6. febrúar, 1929 4. Gilbert Jóhann f. 6. júlí, 1931 5. Anna Claire f. 27. október, 1932.

Friðhólm var sonur Benedikts Kristjánssonar og Bjargar Auðunardóttur á Finnsstöðum í Fljótsbyggð. Hann var verslunarmaður  og bókhaldari í Riverton. Kristín var dóttir Hallgríms Valdimars Friðrikssonar og Önnu Sigríði Pétursdóttur í Geysisbyggð. Kristín varð kennari árið 1922 og kenndi í rúm 20 ár, þar af 11 í Riverton.