Ármann Jónasson

ID: 8471
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1940

Ármann Jónasson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 22. júlí, 1861. Dáinn í Riverton 25. ágúst, 1940.

Maki: Ósk Ingiríður Sigurðardóttir f. í Húnavatnssýslu, 30. ágúst, 1870, d. 9. desember, 1917.

Börn: 1. Sigurður f. 25. október, 1891 2. Grámann f. 1892, d. ungur 3. Tómas Greenwood f. 8. júlí, 1893 í Quebec City 4. Júlíus Grámann f. 20. september, 1895 5. Aðalsteinn Elías f. 12. mars, 1897 6. Jógrímur f. 8. september, 1898 7. Ólafur Sigmar f. 17. febrúar, 1900 8. Lárus f. 6. júní, 1909 9. Rachel Sigþrúður f. 24. ágúst, 1911.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og settust að í Selkirk. Árið 1905 námu þau land í Ísafoldarbyggð og fluttu á það ári síðar. En landið var erfitt, blautt og hey ónóg. Þau fluttu þaðan 1911 til Winnipeg þar sem Óska vann á hóteli en Ármann reyndi áfram búskap í Nýja Íslandi á sumrin. Þau fóru þaðan aftur í Ísafoldarbyggð árið 1913. Ármann heimsótti Ísland árið 1920 en sneri aftur til Nýja Íslands ári síðar og settist að í Riverton.