Sigbjörn Þorvarðarson

ID: 8530
Fæðingarár : 1875

Sigbjörn Þorvarðarson fæddist í S. Múlasýslu árið 1875.

Maki: Elín Björg Jónsdóttir f. 1881 í S. Múlasýslu. Hún giftist seinna Ingvari Ólafssyni og bjuggu þau í Vatnabyggð í Saskatchewan.

Börn: 1. Ágúst Björgvin Sigbjörnsson f. 1900

Þau bjuggu í Steinholti í S. Múlasýslu árið 1901 og voru þar líka foreldrar Elínar og faðir Sigbjörns. Tveimur árum seinna eða 1903 fara Sigbjörn og Elín vestur til Kanada en foreldrar Elínar og systkini hennar fara frá Búðum í Fáskrúðsfjarðarhreppi vestur til Kanada árið 1905.