Þuríður Sigfúsdóttir

ID: 8548
Fæðingarár : 1877
Dánarár : 1905

Þuríður Sigfúsdóttir fæddist í N. Múlasýslu, 1877. Dáin í Manitoba 2. apríl, 1905.

Maki: Sigurður Indriðason f. í Húnavatnssýslu 14. júlí, 1863, d. í Selkirk, Manitoba 25. nóvember, 1949.

Börn: 1. Súsanna f. 1903 2. Indriði Jón f. 1. september, 1903.

Sigurður flutti ungur til Bandaríkjanna og stundaði sjómennsku frá Boston í 10 ár. Sneri þá aftur til Íslands.  Árið 1904 fluttu Sigurður og Þuríður til Manitoba og settust að í Selkirk. Þar vann Sigurður á geðveikrahæli.